Wednesday, August 10, 2005

jeg er lige glad...

Eg er stødd i danmørku thessa stundina svo stafirnir eru e-d skritnir.
Thar sem eg er med kolbiladan hund mer vid hlid sem gæti bitid af mer hausinn hvenær sem er ætla eg bara ad gera stutta upptalningu a thvi sem eg hef gert herna.

  • tyndi veski i køben
  • fann veski i køben
  • keypti allt of mikid
  • for a kojufylleri med ØMMU uppi a hoteli
  • hitti agætis MRinga a røltinu um strikid
  • fa mer a.m.k en øl a dag
  • fremja bankaran?
  • fara i vatnsrennibrautagard i urhellisrigningu
  • og lata hundinn hans pabba bita mig i klessu

bara agætis ferd thad!

|

Thursday, July 07, 2005

Seisei...

Ég ákvað að blogga svolítið lengur, þar sem mér þótti vera mikil hvattning í orðum Gunnhildar.
Ég hugsa að það verði þó ekki oft, því mér finnst tölvur leiðinleg tæki og reyni því að nota þær eins lítið og ég get.

Hryðjuverk eru ljót og slæm og heimskuleg, og ég verð að viðurkenna að ég varð bara nokkuð hrædd þegar amma kom inn til mín í morgun í mikilli geðshræringu yfir þessu öllu, því frændur mínir eru staddir í Englandi einmitt þessa stundina. Ég reyndi þó að halda ró minni og róa ömmu niður þar sem ég er mikil rólyndismanneskja... En þeir voru sem betur fer ekki í London þegar þetta átti sér stað, þetta vissi ég svosem allan tíman annars hefði ég líklega ekkert haldið ró minni.

Farin að sofa, Bless
|

Saturday, July 02, 2005

Leiðindi!

Þetta er leiðindarblogg, og ég nenni ekkert að skrifa hérna því ég er svo löt.
Ég hef því tekið þá snilldarákvörðun að hætta þessu bara.
|

Tuesday, June 14, 2005

Ég má alveg segja það sem ég vil... ha, Svanhvít!

Seinasta helgi var bara alveg hreint ágæt. Ég ásamt Svanhvíti og Evu Guðrúnu fór í örlítinn flugtúr yfir Reykjanesskagann sem var reglulega gaman og tókum við nokkrar myndir sem munu birtast hér innan skamms, ef Bergur getur hjálpað mér aðeins. Annars koma þær ekki, ALDREI.

bless!
|

Thursday, June 09, 2005

Eins og gengur...

Jájájá... stærðfræðinni náð og á leið í 5.bekk, sem er bara býsna gott.
Það hefur nú frekar lítið á daga mína drifið upp á síðkastið.
Að minnsta kosti ekkert spennandi eða frásögufærandi, bara stanslaus vinna.
Var á næturvakt í nótt með konu sem talar hvorki ensku né íslensku, en þar sem ég hef þessa líka frábæru taknmálshæfileika gekk þetta bara eins og í sögu að ég held, nema að konan álíti mig bara eitthvað stórskrítna núna. Annars mæli ég með þessari vinnu, sjálfstraustið vex alveg gífurlega við að fá að heyra daglega frá gömlum körlum hvað maður er fallegur og ég veit ekki hvað og hvað... já núna er ég bara sátt við bumbuna og allt saman, þeir eru líka alltaf að gefa mér súkkulaði svo ég verð víst bara að sætta mig við þetta.
Farin að sofa, þreytan er farin að segja til sín.

Bless.
|

Thursday, June 02, 2005

Hata bílinn!

Ég er komin með nóg af bílnum hennar ömmu í hvert skipti sem ég fer út úr honum og ætla mér að loka hurðinni gefur hann mér straum, þetta er náttúrulega óásættanlegt. Ég er því hætt að loka hurðum á bílnum þar til betri lausn finnst og ætla mér að nota hjólið í sumar. Enda mun vænni kostur
bless
|

Saturday, May 28, 2005

Hola!

Jæja þá er ég loksins komin með blogg og vil ég þakka Bergi fyrir hjálpina.
Þetta reyndi aðeins of mikið á tölvukunnáttu mína sem er nú ekki upp á marga fiska,
en held að þetta sé nú bara komið gott í bili. Farin að sofa.

P.s. Svanhvít er að vinna á pronto í nótt og má búast við að rekast á stúlkuna þar á næstunni,
ég hvet því alla eindregið til að kíkja til hennar og fá ykkur eins og eina sneið.
|

Gaman gaman

Voða gaman hjá henni Olgu Sonju, munið, Olga Sonja, bæði nöfnin verða að vera þarna annars deyja allir.
|